Næsti fundur stjórnar verður þann 12. október 2023. Skilafrestur umsókna er 2. október 2023.
43.700,-

Meðlagsskuldir er stofnast erlendis

Þeir greiðendur sem eru búsettir á Íslandi og skulda meðlög erlendis geta snúið sér beint til viðkomandi innheimtuaðila erlendis og staðið skil á meðlagsskuldbindingum sínum. Sé krafan í eigu einhverra af Norðurlandaþjóðunum þá er einnig hægt að óska eftir því að Innheimtustofnun hafi milligöngu um innheimtu þeirra. Þá þarf að senda sérstaka beiðni þar að lútandi til stofnunarinnar ásamt afriti kröfubréfs. Yfirvöld á Norðurlöndunum senda jafnframt kröfurnar án beiðni verði vanskil á greiðslum.

Stofnunin getur ekki séð um innheimtu krafna sem stofnast utan Norðurlandanna.